Konur keppast um miða á Grandos: „Systir mín er orðin single og hún verður að sjá þessa kroppa" Kjartan Atli Kjartansson skrifar 6. febrúar 2015 14:53 Konur keppast um miða á kvöldið sem Ásdís Rán stendur fyrir.
Konur keppast um ókeypis miða á sýningu búlgörsku kyntröllanna í Grandos-hópnum. Ásdís Rán Gunnarsdóttir, sem stendur fyrir komu mannanna til landsins, hefur efnt til keppni á Facebook-síðu sinni þar sem hún spyr: „Ég ætla að gefa nokkra miða fyrir vinkonuhópa á Konukvöldið á Spot 20. febrúar núna yfir helgina og eina sem þið þurfið að gera er að kommenta hér og gefa mér nógu góða ástæðu til að gefa ykkur miða...“ Færsla Ásdísar hefur vakið mikla athygli; þegar þessi orð eru skrifuð eru á þriðja tug athugasemda við hana.Grandos menn vekja athygli hvert sem þeir fara, ef marka má heimasíðu þeirra.Þeir sem „kommenta“ við færsluna færar flestar mjög góð rök fyrir því af hverju þær eiga skilið að fá miða á sýninguna. Ein segir að hún og vinkona hennar væru „svo til í að sjá þessa fola. Ég verð lika 25 ára þann 18. febrúar svo það væri sko ekki leiðinlegt að halda uppá það með þessum ofurfolum." Önnur segir: „Ég og örfáar single vinkonur mínar værum rosalega til í að fara þangað, fáum ekkert dekur á valentínusardaginn eða konudaginn svo við myndum fara þangað til að njóta okkar með þessum kroppum!" Sjá einnig: Karlar fækka fötum á konukvöldi Einn maður setur athugasemd við færsluna og segist vilja fá miða fyrir systur sínar og móður, því hann vilji gleðja þær. Hann er ekki sá eini sem vill gleðja skyldmenni sín. Því ein mjög hugulsöm systir setti inn þessa færslu: „Væri til í miða, Systir mín er orðin single og hún verður að sjá þessa kroppa". Ljóst er að eftirspurnin eftir ókeypis miðum á sýningu Grandos-hópsins er gífurleg.Sjá einnig:Þessi kyntröll eru á leið til landsins Í auglýsingu frá kvöldinu segir að danshópurinn ætli „að kæta kvenþjóðina á Íslandi með sinni alræmdu danssýningu sem hefur slegið í gegn víðsvegar um Evrópu.“ Á kvöldinu munu strákarnir að sjálfsögðu sýna listir sínar, auk þess sem gestir geta tekið þátt í happadrætti. Einnig verður uppistand og að kvöldinu loknu gefst gestum tækifæri á að mynda sig með þessum búlgörsku kyntröllum sem ferðasta landa á milli til að sýna kroppinn. Strákarnir halda úti heimasíðu þar sem hægt er að fræðast um Leon, Angelo, Mike, Stiv, Steven og Silver. Við mælum með Google Translate til að þýða síðuna fyrir þá sem þess þurfa. En þó að flestar athugasemdirnar við færslu Ásdísar hafi verið frá þeim sem vonuðust eftir miða á kvöldið var einn sem vildi eingöngu lýsa yfir ánægju sinni með Ásdísi. Danskur maður, Kim að nafni, var ekkert að skafa utan af því í sinni athugasemdi og sagði við Ásdísi: „DU ER COOL". Hér að neðan má Grandos-strákanna þá leika listir sýnar.Post by GRANDOS SHOW. Þeir taka meira að segja líka Michael Jackson. Post by GRANDOS SHOW.
Mest lesið Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Bíó og sjónvarp „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Lífið „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Tónlist Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Lífið Framhald: „Málið er að mig langar ekki til að deyja“ Áskorun Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Lífið Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Lífið Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Lífið Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Lífið Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum Lífið Fleiri fréttir Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja útieldhús Dóttir Ingós og Alexöndru komin með nafn „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Hvað eru plötusnúðarnir að hlusta á? „Ég nenni ekkert að hafa eitthvað að sanna“ „Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“ Krakkatían: Óveður, flugvélar og kirkjur Hlaupa Bleiku slaufuna í sólarhring Mary drottning hafi undrast umræðu um brúna skó Björns Laufey á lista yfir áhrifamestu áhrifavaldana Fékk ekki atvinnuviðtöl vegna kínverska nafnsins Höllu fylgt um Kaupmannahöfn: „Er hún ekki vinsæl á Íslandi?“ Fréttatía vikunnar: Halla Tómasdóttir, óveður og tölur Glæsihús umvafið ósnortnu hrauni Frumsýning á Vísi: Stikla úr sýningunni Óskaland Teknó baróninn á Radar á laugardag Sjá meira