Lífið

Kerry Washington breytt á forsíðu InStyle

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kerry Washington
Kerry Washington Vísir/Getty
Leikkonan Kerry Washionton prýðir forsíðu marsútgáfu InStyle tímaritsins.

Á myndinni er greinilega búið að eiga mikið við andlit leikkonunnar í photoshop og er hún nánast óþekkjanleg, fyrir utan að húðlitur hennar var lýstur töluvert.

Aðdáendur leikkonunnar eru mjög ósáttir við útgefendur tímaritsins og gagnrýna þá mjögfyrir að hafa breytt henni.

Washington svaraði á twitter að hún væri ánægð með umræðuna sem væri að skapast og hún væri þörf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×