Lífið

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna: Þú hefur ekki hundsvit á bókum

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna fer fram um helgina. Þann sjöunda febrúar verður besta stuttmynd framhaldsskólanema verðlaunuð.

Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra sendir frá sér myndina Kátur á safninu.

Leikarar: Beggó Pálma leikur Strák. Kátur leikur sig sjálfan og Kristbjörg Kemp leikur Konu.

Leikstjóri, klipping og myndataka:  Jóna Salvör, Beggó Pálma og Árni Gunnarsson.

Um myndina: Fólk heldur oft á tíðum að það sé gáfaðra en það er.

Kvikmyndahátíð framhaldsskólannna er skipulögð af hópi nemenda í hátíðaráfanga sem kenndur er á nýsköpunar- og listabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hátíðarstjóri er Benedikt Snær Gylfason nemi, en þetta er frumraun hans sem hátíðarstjóri.

Undirbúningur hófst í haust og hafa 25 stuttmyndir frá framhaldsskólanemum um allt land verið sendar inn.

Heiðursgestur hátíðarinnar er leikstjórinn Ragnar Bragason. Ragnar er þaulreyndur leikstjóri en ferill hans spannar sjö kvikmyndir í fullri lengd, sex þáttaseríur fyrir sjónvarp sem seldar hafa verið til sýninga víðsvegar í heiminu og tvær leiksýningar fyrir Borgarleikhúsið. Hann hóf kvikmyndaferil sinn í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem hann leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd.









Fleiri fréttir

Sjá meira


×