Lífið

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna: Kósýkvöld sem breytist í hrylling

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna fer fram um helgina. Þann sjöunda febrúar verður besta stuttmynd framhaldsskólanema verðlaunuð.

Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra sendir frá sér myndina Andlit á glugga.


Leikarar: Marta Árdal, Jónatan Björnsson og Beggó Pálma.

Leikstjóri, klipping og myndataka:Halldór Ingólfsson og Beggó Pálma.

Um myndina: Ungt par með lítið barn ætlar að eiga notalegt kvöld saman, en kvöldið breytist skyndilega í hrylling. 

Kvikmyndahátíð framhaldsskólannna er skipulögð af hópi nemenda í hátíðaráfanga sem kenndur er á nýsköpunar- og listabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hátíðarstjóri er Benedikt Snær Gylfason nemi, en þetta er frumraun hans sem hátíðarstjóri.

Undirbúningur hófst í haust og hafa 25 stuttmyndir frá framhaldsskólanemum um allt land verið sendar inn.

Heiðursgestur hátíðarinnar er leikstjórinn Ragnar Bragason. Ragnar er þaulreyndur leikstjóri en ferill hans spannar sjö kvikmyndir í fullri lengd, sex þáttaseríur fyrir sjónvarp sem seldar hafa verið til sýninga víðsvegar í heiminu og tvær leiksýningar fyrir Borgarleikhúsið. Hann hóf kvikmyndaferil sinn í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem hann leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×