Lífið

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna: Hellað partý og sumarfrí

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna fer fram um helgina. Þann sjöunda febrúar verður besta stuttmynd framhaldsskólanema verðlaunuð.

Menntaskólinn á Tröllaskaga sendir frá sér myndina Gemmér bassann.


Menntaskólinn á Tröllaskaga sendir frá sér myndina Gemmér bassann.

Leikarar: Grétar Áki Bergsson, Hákon Leó Hilmarsson, Ívar Örn Guðmundsson og Örn Elí Gunnlaugsson

Leikstjóri, klipping og myndataka: Grétar Áki Bergsson og Heimir Ingi Gretarsson

Um myndina: Myndbandið sýnir gleði unga fólksins á Tröllaskaga þegar skólanum lýkur á vorin



Kvikmyndahátíð framhaldsskólannna er skipulögð af hópi nemenda í hátíðaráfanga sem kenndur er á nýsköpunar- og listabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hátíðarstjóri er Benedikt Snær Gylfason nemi, en þetta er frumraun hans sem hátíðarstjóri.

Undirbúningur hófst í haust og hafa 25 stuttmyndir frá framhaldsskólanemum um allt land verið sendar inn.

Heiðursgestur hátíðarinnar er leikstjórinn Ragnar Bragason. Ragnar er þaulreyndur leikstjóri en ferill hans spannar sjö kvikmyndir í fullri lengd, sex þáttaseríur fyrir sjónvarp sem seldar hafa verið til sýninga víðsvegar í heiminu og tvær leiksýningar fyrir Borgarleikhúsið. Hann hóf kvikmyndaferil sinn í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem hann leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×