Lífið

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna: Stórfurðulegt partý

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna fer framum helgina. Þann sjöunda febrúar verður besta stuttmynd framhaldsskólanema verðlaunuð.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla sendir frá sér myndina Fiesta Fiesta.

Leikari: Steinunn Ólína Hafliðadóttir

Leikstjóri, klipping og myndataka: Helgi Hrafn Helgason

Um myndina: Ung stúlka býður í partý þar sem gestirnir eru heldur ólíflegir.



Kvikmyndahátíð framhaldsskólannna er skipulögð af hópi nemenda í hátíðaráfanga sem kenndur er á nýsköpunar- og listabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hátíðarstjóri er Benedikt Snær Gylfason nemi, en þetta er frumraun hans sem hátíðarstjóri.



Undirbúningur hófst í haust og hafa 25 stuttmyndir frá framhaldsskólanemum um allt land verið sendar inn.



Heiðursgestur hátíðarinnar er leikstjórinn Ragnar Bragason. Ragnar er þaulreyndur leikstjóri en ferill hans spannar sjö kvikmyndir í fullri lengd, sex þáttaseríur fyrir sjónvarp sem seldar hafa verið til sýninga víðsvegar í heiminu og tvær leiksýningar fyrir Borgarleikhúsið. Hann hóf kvikmyndaferil sinn í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem hann leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×