Lífið

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna: Óþægilegasta lyftuferð allta tíma

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna fer fram um helgina. Þann sjöunda febrúar verður besta stuttmynd framhaldsskólanema verðlaunuð.

Tækniskólinn sendir frá sér myndina Lyftan.


Leikarar: Arngrímur Bragi Steinarsson (Magnús tannlæknir), Svanberg Sigurðsson (óhugnalegi tannlæknirinn), Björk Emilsdóttir (fyrirferðamikil kona), Axel F. Friðriksson (jakkafataklæddi klikkhausinn) og Daníel Páll Kjartansson (uppáþrengjandi fyllibytta).

Leikstjóri, klipping og myndataka:  Aníta Berglind Einarsdóttir, Elsa Ingibjörg Egilsdóttir, Björk Emilsdóttir og Axel F. Friðriksson

Um myndina:  Myndin lýsir pínlegri lyftuferð, þars sem mismunandi þjóðfélagsþegnar eru samankomnir og þurfa að taka tillit til hvors annars.

Kvikmyndahátíð framhaldsskólannna er skipulögð af hópi nemenda í hátíðaráfanga sem kenndur er á nýsköpunar- og listabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hátíðarstjóri er Benedikt Snær Gylfason nemi, en þetta er frumraun hans sem hátíðarstjóri.

Undirbúningur hófst í haust og hafa 25 stuttmyndir frá framhaldsskólanemum um allt land verið sendar inn.

Heiðursgestur hátíðarinnar er leikstjórinn Ragnar Bragason. Ragnar er þaulreyndur leikstjóri en ferill hans spannar sjö kvikmyndir í fullri lengd, sex þáttaseríur fyrir sjónvarp sem seldar hafa verið til sýninga víðsvegar í heiminu og tvær leiksýningar fyrir Borgarleikhúsið. Hann hóf kvikmyndaferil sinn í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem hann leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×