Lífið

Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna: Hundur spjallar við mann

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna fer fram komandi helgi en þann 7. febrúar verður besta stuttmynd framhaldsskólanema verðlaunuð. 

Frá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra (FNV) kemur myndin Kátur á safninu.

Leikarar: Beggó Pálma fer með hlutverk stráksins, Kristbjörg Kemp leikur konu og hundurinn Kátur leikur sjálfan sig

Handrit og myndataka: Jóna Salvör og Árni Gunnarsson 

Klipping: Jóna Salvör og Beggó Pálma 

Framleiðsla: Árni Gunnarsson

Leikstjórn: Jóna Salvör 

Um myndina: Fólk heldur oft á tíðum að það sé gáfaðra en það er. Kvikmyndin er svarthvít og í anda gömlu þöglu myndanna.



Kvikmyndahátíð framhaldsskólannna er skipulögð af hópi nemenda í hátíðaráfanga sem kenndur er á nýsköpunar- og listabraut í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hátíðarstjóri er Benedikt Snær Gylfason nemi, en þetta er frumraun hans sem hátíðarstjóri.

Undirbúningur hófst í haust og hafa 25 stuttmyndir frá framhaldsskólanemum um allt land verið sendar inn.

Heiðursgestur hátíðarinnar er leikstjórinn Ragnar Bragason. Ragnar er þaulreyndur leikstjóri en ferill hans spannar sjö kvikmyndir í fullri lengd, sex þáttaseríur fyrir sjónvarp sem seldar hafa verið til sýninga víðsvegar í heiminu og tvær leiksýningar fyrir Borgarleikhúsið. Hann hóf kvikmyndaferil sinn í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem hann leikstýrði sinni fyrstu stuttmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×