Lífið

Nei, þetta er ekki hann: Nýr tvífari Hauks Harðarsonar gerir alla orðlausa

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Þessi mynd er stórkostleg.
Þessi mynd er stórkostleg.
Mynd af manni sem verður að teljast fáránlega líkur Hauki Harðarsyni íþróttafréttamanni hefur gert alla orðlausa. Sjálfur segist Haukur ekki hafa verið viss hvort að þetta hafi í raun og veru verið mynd af honum sjálfum, fyrr en hann rýndi í hárvöxt mannsins.

„Þetta er alveg fáránlega líkt mér," segir Haukur hlæjandi í samtali við Vísi og bætir við:

„Ég hélt hreinlega að þetta væri ég og var orðinn svolítið hræddur um að ég hefði gleymt einhverjum hluta lífs míns. En þegar ég skoðaði hárið á honum betur þá róaðist ég. Ég hefði aldrei getað safnað svona hári. Mitt hár vex beint upp í loftið, ég er með einhverskonar stálull á höfðinu."

Vinur Hauks setti myndina á Facebook-síðu hans og hafa vinir hans keppst við að lýsa yfir hrifningu sinni á myndinni.

Benedikt Valsson úr Hraðfréttum og Hans Steinar Bjarnason eru meðal þeirra sem settu athugasemdir við myndina. „Ég ætlaði að skrifa eitthvað sniðugt hérna en ég er orðlaus," sagði Hans Steinar.

Haukur var um tíma skiptinemi í Bandaríkjunum og því grínuðust einhverjir vinir hans með að myndin hafi getað verið tekin þar. „Ég vil trúa því að þessi maðrur sé með aðeins stærri undirhöku en ég. Það vill nú oft gerast þegar menn dvelja lengi í Bandaríkjunum; að undirhakan stækkar. Þess vegna hefði þetta getað verið tekið þar. En ég er nú nokkuð viss um að þetta sé ekki mynd af mér. Allavega þekki ég þessa konu á myndinni ekki neitt, en hún virðist vera ofsalega ljúf."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×