Sport

Hetja Patriots fær Chevy í gjöf frá Brady

Sælla er að gefa en að þiggja segir Tom Brady.
Sælla er að gefa en að þiggja segir Tom Brady. vísir/getty
Besti leikmaður Super Bowl fær ávallt eitt stykki Chevy-trukk í verðlaun.

Að þessu sinni fékk Tom Brady, leikstjórnandi Patriots, trukkinn góða en það er samt hálfhjákatlegt enda Brady moldríkur og hefur lítið við gjöfina að gera.

Ekki eru allir félagar hans eins ríkir og því hefur Brady ákveðið að gefa bílinn. Sá sem fær bílinn er hetja Patriots í leiknum, Malcolm Butler.

Hann stal boltanum af Seattle Seahawks undir lok leiksins og tryggði Patriots um leið titilinn.

Gjöfin verður örugglega vel þegin enda Butler láglaunamaður í deildinni.

Hér að neðan má sjá er Butler stelur boltanum.

NFL

Tengdar fréttir

Super Bowl sló áhorfsmet í Bandaríkjunum

Bandaríkjamenn fjölmenntu fyrir framan sjónvarpstækin á sunnudag til þess að fylgjast með leik Seattle Seahawks og New England Patriots í úrslitum ameríska fótboltans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×