Lífið

Inga Lind flott í spænskri auglýsingu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Inga Lind er flott að vanda í auglýsingunni.
Inga Lind er flott að vanda í auglýsingunni.
Sjónvarpskonan Inga Lind Karlsdóttir leikur í nýrri auglýsingu fyrir spænska fjarskiptafyrirtækið Mobile Power. Inga Lind er búsett í Barcelona og hefur greinilega nóg fyrir stafni.

Í auglýsingunni er fylgst með annríkum degi Ingu Lindar frá morgni til kvölds og hvernig hún notar tæknina í athöfnunm dagsins.

Auglýsingin er framleidd af Mark Ferris sem hefur langa reynslu í auglýsingabransanum. Hann hefur tekið upp auglýsingar fyrir Aston Martin, Herbalife, Bentley, Fiat, Volkswagen, Toyota og Nissan, svo einhver fyrirtæki séu nefnd.

Hér að neðan má sjá auglýsinguna.

MP- Band from Bunch of Sox on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×