Lífið

Kim berar bossann á ný: Internetið fór ekki á hliðina

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kim Kardashian
Kim Kardashian Vísir/Getty
Enn ein rassamyndin af Kim Kardashian lak á netið á mánudagskvöld. Á henni sést Kim á fjórum fótum uppi á borði með berann bossann framan í myndavélina.

Er myndin úr myndaþætti fyrir tímaritið LOVE þar sem Kim situr fyrir ásamt systur sinni Kendall Jenner og vinkonu hennar ofurfyrirsætunni Cara Delevingne.

Myndbirtingin náði þó ekki sama flugi og nektarmyndin af Kim sem birtist á forsíðu tímaritsins Paper í lok síðasta árs, en sú mynd setti internetið á hlíðina. 

Sjá einnig: Dagurinn sem sitjandinn á Kim Kardashian rústaði internetinu



„Ég var svo spennt að vinna með ljósmyndaranum Jean-Paul Goude og mér fannst það heiður því hann er goðsögn og ég vildi gera þetta til að öðlast sjálfstraust. Sem fyrirmynd er ég ekki að segja að aðrir ættu að gera þetta en fyrir mig var þetta listaverk og það kenndi mér að gera það sem maður vill gera," sagði Kim í áströlskum spjallþætti í kjölfar þess að myndirnar á forsíðu Paper birtust opinberlega.


„Ég elska myndirnar. Ég gerði þetta fyrir mig. Ég vona að aðrir hafi kunnað að meta þær," bætti hún við.




Tengdar fréttir

Rassar ársins

Afturendar voru áberandi í stjörnuheimum á árinu sem er að líða.

Ár rassa og samfélagsmiðla

Söngkonan Salka Sól Eyfeld og ritstjóri Nútímans Atli Fannar Bjarkason fara yfir það minnisstæðasta í dægurmálum á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×