Lífið

Hið sögufræga Stuðkompaní treður upp sunnan heiða

Jakob Bjarnar skrifar
Þrátt fyrir ungan aldur tókst meðlimum Stuðkompanísins að koma sér rækilega á kortið með miklum og góðum 80's-töktum.
Þrátt fyrir ungan aldur tókst meðlimum Stuðkompanísins að koma sér rækilega á kortið með miklum og góðum 80's-töktum.
Þegar 80's-ið var upp á sitt allra besta kom fram á sjónarsviðið unglingahljómsveit frá Akureyri, sem virtist vera með þetta allt á hreinu, og var það; sítt að aftan, meikaðir og allur pakkinn. Þetta var Stuðkompaníið sem gerði sér lítið fyrir og sigraði Músíktilraunir árið 1987 og átti býsna snarpan feril.

Hljómsveitin kemur saman um helgina, í fyrsta skipti sunnan heiða í 26 ár og hlýtur það að teljast sögulegt og í frásögur færandi. Tilefnið er hið árlega Norðlendingakvöld sem haldið verður á Spot í Kópavogi næstkomandi laugardagskvöld. Fremstur í flokki er söngvarinn, háðfuglinn, Eldfuglinn & eftirherman Karl Örvarsson. Hann er hress og tilkynnir Vísi að þarna verði Stuðkompaníið ásamt Hvanndalsbræðrum, „einum mestu sprelligosum íslenskrar tónlistar undanfarin ár og þá mun Magni „okkar“ Ásgeirsson, einn dáðasti söngvari landsins, stíga á stokk.“

Karl Örvarsson er fullur tilhlökkunar að troða upp með sínum gömlu félögum sem voru vart af fermingaraldri þegar þeir komu fram á sjónarsviðið en létu engu að síður vel að sér kveða. Og margar sögur rifjast upp. „Já, við vorum að spila með Stuðmönnum í Húsafelli, hituðum upp fyrir þá. Við vorum svo vitlausir og óforskammaðir að við spiluðum að minnsta kosti 3 Stuðmannalög í upphituninni þarna fyrsta kvöldið. Þegar við komum af sviðinu sagði Kobbi Magg við mig: Það er ekki nóg með að búið sé að stela nafni Stuðmanna heldur er verið að stela prógramminu líka, fyrir framan nefið á manni!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×