Sport

Baldwin útskýrir kúkafagnið | Myndir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Doug Baldwin skoraði snertimark og fagnaði á ósmekklegan hátt.
Doug Baldwin skoraði snertimark og fagnaði á ósmekklegan hátt. vísir/getty
Doug Baldwin, útherji Seattle Seahawks í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, bauð upp á frekar óvenjulegt og ósmekklegt fagn í Super Bowl-leiknum á dögunum.

Baldwin kom Seattle í 24-14 þegar fimm mínútur voru eftir af þriðja leikhluta og fagnaði með því að þykjast vera að kúka boltanum eða að kúka á hann.

Eftir leikinn vildi hann ekkert tala um fagnið ósmekklega en ræddi það í útvarpsviðtali við ESPN í gær. Hann segir því hafa verið beint að Darrelle Revis, bakverði New England Patriots, sem dekkaði hann allan leikinn.

„Ég eyddi tveimur vikum í að undirbúa mig fyrir Darrelle Revis. Ég lagði mikið í þetta og því var mikill pirringur búinn að vera í manni allan leikinn. Þetta var bara á milli okkar og ég sýndi hvernig mér leið þarna,“ sagði Baldwin.

Hann var ósáttur við hversu fá tækifæri hann fékk í leiknum, en boltanum var nánast aldrei kastað að honum þar sem hann var í pössun hjá Revis sem er einn besti bakvörðurinn í sögu NFL-deildarinnar.

„Ég var frekar pirraður að fá ekki fleiri tækifæri. Þarna var ég að mæta einum besta leikmanni deildarinnar og langaði að sanna mig. Ég var því frekar pirraður en þetta er allt hluti af leiknum,“ sagði Baldwin.

Þetta fagn hefur verið skírt „Poop-down“ í bandarískum fjölmiðlum, en Baldwin vildi biðja alla afsökunar á athæfi sínu.

„Ég sé eftir því að þetta kostaði liðið mitt 15 jarda víti. Og stuðningsmennina bið ég heilshugar afsökunar ef þeir móðguðust á einhvern hátt.“

Dómarinn var fyrir Darrelle Revis og því var Baldwin einn og óvaldaður í eina skiptið í leiknum.vísir/getty
vísir/getty
vísir/getty
vísir/getty
vísir/getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×