Fjöldi manns var þar samankominn á ráðstefnu sem fjallar um list, guðlast og tjáningarfrelsi.
Heimildarmenn danskra miðla segja að þrír lögreglumenn hafi orðið fyrir skotum en talið er að byssumennirnir séu tveir og ganga þeir enn lausir.
Meðal gesta á ráðstefnunni eru sendiherra Frakklands í Danmörku og sænski teiknarinn Lars Vilks.
Vilks teiknaði meðal annars skopmyndir af spámanninum Múhameð og birtust þær myndir í danska blaðinu JyllandsPosten í september á síðasta ári.
Í tilkynningu frá lögreglunni í Danmörku kemur fram að um hryðjuverkaárás sé að ræða.
Hér má horfa á umfjöllun TV2 um málið.
Uppfært klukkan 16:27 - Talið er að byssumennirnir séu á svörtum Volkswagen Polo og hefur verið lýst eftir bifreiðinni.
Uppfært klukkan 16:49 - Lögreglan telur fullvíst að mennirnir hafi ætlað að myrða Lars Vilks í dag. Hann slapp aftur á móti frá mönnunum sem töluðu báðir dönsku og voru svartklæddir.
Uppfært klukkan 17:20: - Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur staðfest við danska miðla að einn borgari lét lífið í skotárásinni og þrír lögreglumenn særðust. Lögreglan leitar enn þeirra tveggja sem grunaðir erum um að hafa staðið að skotárásinni.
Uppfært klukkan 17:43: Lögreglan í Kaupmannahöfn segir hinn látna hafa verið fertugan Dana.
Still alive in the room
— Frankrigs ambassadør (@francedk) February 14, 2015
Reports of one civilian casualty in Lars Vilks attack in #Cph. Two police officers injured. Two gunmen at large. Fleed in dark VW Polo
— TV 2 NEWS (@tv2newsdk) February 14, 2015
30+ shots fired @ event organized by Swedish artist Lars Vilks, who's under threat for caricaturing Muhammad in 2007 http://t.co/1JIqjtDXCp
— John Schindler (@20committee) February 14, 2015
Breaking news: 20-40 shots fired at cartoonist Lars vilks who reportedly escaped thru back door of amb. residence, http://t.co/n3GqUee9XW
— Mia Bloom (@MiaMBloom) February 14, 2015
Copenhagen shooting: Charlie Hebdo-style attack on police at talk featuring controversial cartoonist Lars Vilks http://t.co/rCOA2zHdJV
— micky evans (@EvansMicky) February 14, 2015
Shooting at blasphemy debate in Copenhagen featuring controversial cartoonist Lars Vilks — RT News http://t.co/xdP1u2cwoE
— Harold W Nelson (@HaroldWNelson) February 14, 2015
Shots fired at Copenhagen cafe where artist known for Prophet Mohammed drawings was speaking http://t.co/Ydjj7tZgfm pic.twitter.com/4xF4qOp7Wd
— Daily Mail Online (@MailOnline) February 14, 2015
Danish media reports 3 police officers have been injured in shooting at cafe in #Copenhagen where a freedom of speech meeting was being held
— Sky News Newsdesk (@SkyNewsBreak) February 14, 2015