Alonso setur sér markmið eftir fyrstu keppni

Alonso segist vera virkilega hrifinn af metnaði Honda fyrir verkefninu og nálgun þeirra og samstarfi við McLaren. Hann heimsótti höfuðstöðvar Honda í Japan á dögunum.
„Ég sá mikið af hæfileikaríku fólki hjá Honda þegar ég heimsótti verksmiðjuna í Sakura. Ég sá allt aðra nálgun samanborið við önnur lið, hér er þetta nálgast með mjög vísindalegum og tæknilegum aðferðum,“ sagði spænksi ökumaðurinn.
„Í þessari nýju Formúlu 1 er mikið af rafmagni og hugbúnaði - það er mikið af samskiptum. Ég held að með tækninni sem Honda beitir og japanskri menningu getum við sett saman einhverja snilld,“ bætti hann við.
Alonso er jákvæður en vill samt ekki setja sér nein markmið fyrr en hann veit hvað bíllinn getur í raun. Hann hefur ekki ekið honum á fullu afli.
„Við viljum ná í titla. Ég veit ekki hvort það verði á fyrsta ári, því öðru eða því þriðja - vonandi sem allra fyrst,“ sagði Alonso að lokum.
Tengdar fréttir

Neale: Fyrri hluti tímabilsins verður erfiður
McLaren hefur sagt að mikil vinna sé fyrir hödum til að komast aftur í toppbaráttuna í Formúlu 1. Helsta forgangsatriðið núna sé að koma nýju Honda vélinni í keppnisform.

Felipe Nasr fljótastur, McLaren komst á skrið
Nýliðinn Felipe Nasr á Sauber varð fljótastur á þriðja degi æfinga. Mercedes bilaði og McLaren gat keyrt 32 hringi.

Rekstur Formúlu 1 liðs Mercedes Benz kostaði 38 milljarða í fyrra
Hafa eytt gríðarlegum upphæðum á undanförnum árum, en árangurinn eftir því.

McLaren endurnýjar kynnin við Honda
Voru síðast með Honda vél fyrir 23 árum og verður nú eitt liða með Honda vél.

Bílkskúrinn: Stútfullur af nýjum bílum
Nýju bílarnir eru til skoðunar hér í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Svona líta nýju formúlu eitt bílarnir út | Myndir
Eftir langan vetur er loksins komið að því, nýjir Formúlu bílar hafa litið dagsins ljós. Það er alltaf forvitnilegt að sjá hvað hönnuðum liðanna dettur í hug og hver þróunin verður í framhaldinu.

Bottas: Ég vil vera í besta bílnum
Valtteri Bottas, ökumaður Williams liðsins segist vilja vera í besta möglega Formúlu 1 bílnum. Honum er sama hjá hvaða liði það er.

Dennis: Alonso vill jafnræði
Ron Dennis, keppnisstjóri McLaren segir Fernando Alonso hafa þroskast mikið síðan 2007. Alonso vill að jafnræði ríki á milli hans og Jenson Button.