Lífið

Ha, í hverju er ég?

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Eddie Redmayne hissa á spurningunni
Eddie Redmayne hissa á spurningunni Vísir
Vefsíðan Buzz Feed í Bretlandi sendi blaðamenn á Bafta verðlaunin í þeim tilgangi að spyrja leikarana á rauða dreglinum sömu spurninga og leikkonurnar eru vanar að fá. Spurningar eins og í hverju ertu? og viltu snúa þér í hring og sýna okkur?

Viðbrögð leikaranna voru vægast sagt frábær og var svar tónlistarmannsins Nick Cave við spurningunni í hverju ertu "What do you mean?" Leikarinn Michael Keaton neitaði að snúa sér í hring og Harvay Weinstein hló þegar hann var spurður í hverju hann væri.

Blaðamenn hafa verið gagnrýndir fyrir að spyrja leikkonur eingöngu út í útlit og klæðnað þeirra, í stað þess að spyrja þær út í hlutverkið þeirra á meðan karlleikarar fá einungis spurningar þess efnis.

En sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×