Sport

RG3 reifst við bolinn á Instagram

Robert Griffin III eða RG3.
Robert Griffin III eða RG3. vísir/getty
Saklaust myndband af NFL-stjörnunni Robert Griffin III syngjandi Billie Jean með Michael Jackson leiddi til rifrildis á Instagram-síðu hans.

RG3 hefur ekki náð að standa undir þeim væntingum sem til hans hafa verið gerðar í NFL-deildinni og hann á haug af óvildarmönnum sem vilja gera honum lífið leitt.

Einn skrifaði á myndbandið þetta væri ástæða fyrir því að hann yrði sendur frá Washington Redskins. Hann kynni ekki að einbeita sér að því sem skipti máli. Hann þyrfti að fara að haga sér eins og leikstjórnandi. „Eina sem skiptir þig máli er vörumerkið RG3 og hvernig þú hagar þér á samfélagsmiðlum," skrifaði gagnrýnandinn.

Það er engin nýlunda að stórstjörnur fái flórinn yfir sig á Instagram frá bolnum en þær svara þó aldrei fyrir sig. Það kom því gríðarlega á óvart að Griffin skildi gera það.

Hann skiptist á skoðunum við manninn og báðir voru merkilega kurteisir og málefnalegir.

„Þó svo ég njóti þessa frábæra lags með MJ get ég þá ekki gert neitt annað? Nú leita ég eftir visku þinni," spurði RG3 meðal annars.

Stjarnan þakkaði að lokum fyrir sig og bað Guð að blessa manninn. Síðan er hann búinn að stroka öll ummælin út.

Engu að síður má sjá hann raula með laginu hér að neðan.

Jamming to MJ on the way to get that work in this morning #BillyJean What you working with this morning?

A video posted by Robert Griffin III (@rgiii) on

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×