Erlent

Laug Bill O´Reilly um átök í Argentínu?

Samúel Karl Ólason skrifar
Bill O'Reilly.
Bill O'Reilly. Vísir/AP
Saga Bill O‘Reilly um svaðilfarir sínar í Argentínu árið 1982 hefur verið dregin í efa af fyrrverandi samstarfsmönnum hans. Hann var þar á vegum CBS að fjalla um Falklandseyjastríðið og sagðist hafa verið á átakasvæði, séð hermenn stráfella borgara, að myndatökumaður hans hafi slasast og að hermaður hafi miðað byssu á hann.

„Enginn man eftir því að þetta hafi gerst,“ segir Manny Alvarez, sem var myndatökumaður fyrir CBS og var í Buenos Aires á sama tíma. Þetta er haft eftir honum á vef CNN. Aðrir starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar sem CNN ræddi við kannast ekki við frásögn O‘Reilly.

Tímaritið Mother Jones, birti fyrst grein um ósamræmi O‘Reilly og samstarfsmanna hans. O‘Reilly brást við með því að segja Mother Jones vera í herferð gegn sér og Fox News.

Fox News og Bill O‘Reilly hafa ekki svarað fyrirspurn Mother Jones, en spurningar sem lagðar voru fyrir hann má sjá hér.

CNN hefur rætt við nokkra þáverandi starfsmenn CBS en enginn þeirra kannast við þau atvik sem O‘Reilly hefur lýst. Þá kannast þáverandi starfsmannastjóri CBS ekki við að nokkur starfsmaður þeirra hafi slasast í Buenos Aires.

O‘Reilly sagðist hafa þurft að draga myndatökumann sinn inn í hús eftir að hann hafi verið hlaupinn niður. Hann sagði hermenn hafa verið að skjóta borgara sem voru að mótmæla átökunum og að hermaður hafi nærri því skotið hann.

Í fréttum af mótmælunum á þeim tíma kom hvergi fram að dauðsföll hafi orðið, en einhverjir slösuðust þó. Myndatökumaðurinn sem var með O‘Reilly vill ekki tjá sig um þetta atvik. CNN hefur þó eftir Miu Fabius, yfirmanni myndatökumannsins að hann hafi aldrei sagt frá því að hafa meiðst.

Brian Williams.Vísir/AP
Brian Williams, sem hefur stýrt vinsælasta fréttaþætti Bandaríkjanna á NBC, viðurkenndi í síðasta mánuði að hafa logið því að þyrla hans hafi verið skotin niður í Írak. Williams var settur í sex mánaða launalaust leyfi á meðan rannsókn stendur yfir.

Bill O‘Reilly hefur hins vegar ekki viðurkennt að hafa sagt rangt til um aðstæður í Argentínu. Þess í stað segir hann vinstri sinnaða fjölmiðla vera í herferð gegn sér. Hann segist ætla að sanna mál sitt í þætti sínum á Fox í kvöld.


Tengdar fréttir

Laug til um upplifun sína sína af stríði

Bandarískur fréttaþulur hefur beðist afsökunar á að hafa logið til um upplifun sína af því þegar skotið var á þyrlu sem hann sagðist hafa verið í í Írak árið 2003.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×