Lífið

Með málverk af sér í svefnherberginu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þingmaður Ásmundur Friðriksson selur einbýlishúsið í Garði.
Þingmaður Ásmundur Friðriksson selur einbýlishúsið í Garði.
Ásmundur Friðriksson þingmaður er að fara að færa sig um set í kjördæminu og er einbýlishús hans og eiginkonu hans komið á sölu.

„Ég ætla bara að færa mig um stað í kjördæminu,“ segir hann og tekur fyrir að hann sé að flytja í höfuðborgina.

„Þá fengi ég nú malbikseitrun um leið,“ svarar hann léttur í bragði.

Heitur pottur er við húsið.Vísir/Fasteignir.is
Húsið, sem er við Ósbraut í Garði, er 210 fermetrar að stærð með sex herbergjum. Það segir Ásmundur að sé allt of stórt. 

„Þetta er alltof stórt fyrir mig og konuna,“ segir Ásmundur.



„Þetta er gullið tækifæri fyrir þá sem eiga fullt af börnum eins og ég,“ segir hann. Öll börnin eru þó flutt af heiman og eru þau nú bara tvö eftir.

„Við erum bara tvö í kotinu með einn lítinn hund.“

Úr eldhúsi þingmannsins.Vísir/Fasteignir.is
Í húsinu, sem byggt var árið 2004, eru fimm svefnherbergi en fataherbergi er inn af hjónaherberginu. Allar lagnir eru til staðar til að breyta því yfir í baðherbergi.

Á myndum af húsinu á fasteignavef Vísis má sjá að í svefnherbergi þeirra hjóna er málverk af Ásmundi.

Hana fékk hann að gjöf frá vini sínum. 



„Þetta var nú félagi minn og vinur í Garðinu, sem heitir Bragi Einarsson, hann málaði þessa mynd af mér og gaf mér hana og ég endurgalt honum vináttuna með því að teikna af honum mynd og gefa honum hana,“ segir Ásmundur sem er liðtækur teiknari. 

Teikning sem Ásmundur gerði. Þessi er af Guðmundi Viðarssyni.Ásmundur
Í lýsingu hússins á fasteignavef Vísis kemur fram að Ásmundur og fjölskylda eru reiðubúin að skoða skipti á minni eign í Reykjanesbæ.

Hægt er að skoða fleiri myndir og kynna sér eignina nánar á fasteignavef Vísis.

Húsið að utan.Vísir/Fasteignir.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.