Sport

Hættur í NFL eftir eitt ár af ótta við heilaskemmdir

Læknir skoðar Borland á síðustu leiktíð.
Læknir skoðar Borland á síðustu leiktíð. vísir/getty
Það er ekki hættulaust að spila í NFL-deildinni og Chris Borland er ekki til í að spila rúllettu með líf sitt.

Hann var einn besti nýliðinn í NFL-deildinni á síðustu leiktíð en Borland, 24 ára, er varnarmaður hjá San Francisco 49ers. Hann átti að fá enn stærra hlutverk hjá Niners í ár þar sem Patrick Willis er hættur en af því verður ekki. Borland er líka hættur sem setur 49ers í slæma stöðu.

Fjölmargir leikmenn NFL-deildarinnar hafa endað með heilaskemmdir enda heilahristingar nánast daglegt brauð í íþróttinni.Taugaskemmdir eru einnig algengar.

„Ég er bara að hugsa um heilsuna," sagði Borland en hann tók ákvörðun sína eftir langa yfirlegu. Hann ræddi málið við lækna, fyrrum leikmenn og fjölskyldu sína.

„Miðað við þær upplýsingar sem ég hef í dag er þetta ekki áhættunnar virði. Mér líður vel í dag og ætla ekki að hætta eftir að hafa meiðst. Ég vil lifa lengi og vera heilbrigður."

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×