Formúla 1

Kristján Einar hitar upp fyrir Formúlu 1: Kimi er eins og klaki

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Nýtt tímabil í Formúlu 1 er hafið og fyrsta keppnin fer fram um helgina í Ástralíu þar sem titilvörn Lewis Hamiltons og Mercedes-liðsins hefst.

Spennan er mikil fyrir tímabilið enda áttu sér stað rosaleg félagaskipti í vetur þegar tvöfaldi heimsmeistarinn Fernando Alonso gekk aftur í raðir McLaren og fjórfaldi heimsmeistarinn tók stöðu hans hjá Ferrari.

Reglubreytingarnar eru ekki jafnmiklar og í fyrra en þó er ein regla sem á eftir að gera mönnum lífið leitt.

Gríðarlega áhugaverður nýliði er mættur til leiks; Hollendingurinn Max Verstappen. Hann hefði fengið bílpróf á Íslandi fyrir 164 dögum en er að keyra í Formúlu 1.

Hér að ofan má sjá myndband eftir Garðar Örn Arnarson þar sem Kristján Einar Kristjánsson, fyrrverandi Formúlu 3-ökumaður og sérfræðingur Stöðvar 2 Sports um Formúlu 1, svarar nokkrum vel völdum spurningum um komandi tímabil.

Kristján Einar verður með Rúnari Jónssyni í Formúlu 1 á Stöð 2 Sport eins og í fyrra, en þeir félagarnir hefja leik í tímatökunni klukkan 5.50 í fyrramálið.


Tengdar fréttir

Gagnvirkt brautarkort og tölfræði

Gagnvirkt stafrænt kort af hverri keppnisbraut á keppnisdagatali Formúlu 1 verður sett neðst í fréttir tengdar viðkomandi keppni.

Sauber áfrýjar Van der Garde málinu

Sauber liðið hefur ákveðið að áfrýja dómi Hæstaréttar Viktoríu fylkis í Ástralíu. Dómstóllinn úrskurðaði að Giedo van der Garde ætti samningsbundinn rétt á að keyra fyrir liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×