Formúla 1

Mercedes fljótastir í Melbourne

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes voru ósnertanlegir á æfingum í nótt.
Mercedes voru ósnertanlegir á æfingum í nótt. Vísir/Getty
Nico Rosberg fljótastur á föstudagsæfingunum í Ástralíu í nótt.

Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingunni en ekki munaði miklu, Hamilton var 0,029 sekúndum á eftir liðsfélaga sínum.

Valtteri Bottas á Williams komst næst Mercedes. Hann var þó rúmri sekúndu á eftir. Nýliðinn Carlos Sainz Jr. á Toro Rosso varð þriðji næstum einni og hálfri sekúndu á eftir Hamilton.

Jenson Button og Kevin Magnussen á McLaren komust aðeis 6 og 7 hringi áður en vélar biluðu í bílum þeirra.

Sauber og Manor Marussia tóku ekki þátt í æfingunni. Manor glímdi við tæknileg vandamál en Sauber lögfræðileg.

Rosberg á ferðinni í Ástralíu.Vísir/getty
Rosberg var einnig fljótastur á seinni æfingunni einum tíunda úr sekúndu á undan Hamilton. En Ferrari menn fóru að minnka bilið þegar á leið.

Sebastian Vettel komst næst Mercedes, 0,715 sekúndum á eftir Rosberg. Kimi Raikkonen var fjórði rúmri sekúndu á eftir Rosberg.

Vatnsleki kom í veg fyrir að Felipe Massa setti tíma. Tæknileg vandamál Manor liðsins hélt því í bílskúrnum.

Marcus Ericsson og Felipe Nasr á Sauber fengu að yfirgefa bílskúrinn eftir fortölur lögfræðinga Giedo van der Garde.

Tímatakan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport sem hefst klukkan 5:50 í fyrramálið. Bein útsending frá fyrstu keppni tímabilsins hefst klukkan 4:30 á sunnudagsmorgun einnig á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt kort af Albert Park brautinni í Melbourne.


Tengdar fréttir

Sauber áfrýjar Van der Garde málinu

Sauber liðið hefur ákveðið að áfrýja dómi Hæstaréttar Viktoríu fylkis í Ástralíu. Dómstóllinn úrskurðaði að Giedo van der Garde ætti samningsbundinn rétt á að keyra fyrir liðið.

Manor með til Melbourne

Manor liðið hefur staðfest að 2015 bíll liðsins sé reiðubúinn og mæti í fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu eftir 10 daga.

Alonso ekki með í Ástralíu

Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins hefur ákveðið að taka ekki þátt í ástralska kappakstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×