Sport

Hætti og henti frá sér milljarði

Patrick Willis.
Patrick Willis. vísir/getty
Einn besti varnarmaður NFL-deildarinnar, Patrick Willis hjá 49ers, er mjög óvænt búinn að leggja skóna á hilluna.

Willis er orðinn þrítugur og hefur sjö sinnum verið valinn í stjörnulið deildarinnar átta ára ferli.

Hann spilaði aðeins sex leiki á síðustu leiktíð vegna támeiðsla en fastlega var búist við því að hann kæmi inn af krafti næsta vetur.

Nú er San Francisco 49ers búið að staðfesta að Willis sé hættur. Með því að taka ekki slaginn næsta vetur er Willis að gefa frá sér milljarð sem hann átti að fá í laun.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×