„Það er langt síðan ég hef náð í efsta þrepið og í fyrsta skipti með Ferrari. Liðið tók vel á móti mér og ég er gríðarlega ánægður. Við unnum Mercedes á jafnréttis grundvelli,“ sagði Vettel.
„Ég er eiginlega bara orðlaus. Síðasta ár var ekki gott. Bíllinn í ár hentar mér mjög vel. Ég man þegar ég kom fyrst inn í verksmiðjuna í Maranello, það var eins og draumur að rætast. Ég man þegar ég var lítill að horfa yfir girðinguna þar á Michael (Schumacher) æfa sig. Nú er ég að aka þessum rauða bíl sem er ótrúlegt,“ bætti Vettel við.
„Við gerðum allt sem við gátum, við áttum ekki svar við hraða Ferrari í dag. Liðið stóð sig vel,“ sagði Lewis Hamilton frekar niðurlútur.
„Það eina sem ég get sagt sýnið hvað þið getið Ferrari. Ferrari vann verðskuldað í dag. Við munum koma með allt sem við getum í næstu keppni,“ sagði Nico Rosberg.

„Ferrari voru einfaldlega betri í dag,“ sagði Niki Lauda, sérstakur ráðgjafi Mercedes.
„Við getum ekki ætlast til að vinna keppnir að eilífu. Kannski er þetta vakningin sem við þurfum. Við komum vonandi sterkari til baka. Það þýðir ekkert að ræða keppnisáætlunina eftir keppnina. Við munum vinna harðar að okkar bílum. Ferrari á hrós skilið fyrir framfarir vetrarins,“ sagði Toto Wolff, keppnisstjóri Mercedes.
„Það fór margt úrskeiðis hjá okkur um helgina. Eftir að dekkið sprakk var fjórða sætið eins gott og við gátum vonað í dag. Við erum að verða sterkari,“ sagði Kimi Raikkonen sem átti virkilega kaflaskipta helgi í Malasíu.
„Fyrstu hringirnir voru erfiðir en ég naut mín í dag, gat tekið þátt í skemmtilegum slag á brautinni og liðið á hrós skilið fyrir góðan bíl,“ sagði Max Verstappen sem varð yngsti ökumaður sögunnar til að ná í stig í Formúlu 1 í dag.
„Við eigum mikla vinnu fyrir höndum ef við ætlum að vinna Ferrari,“ sagði Valtteri Bottas á Williams sem margir töldu eina liðið sem gæti skákað Mercedes.