Innlent

Sérstök umræða á þingi um samning Ragnheiðar Elínar við Matorku

Atli Ísleifsson skrifar
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Vísir/gva
Sérstök umræða verður um ívilnunarsamning Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðar- og viðskiparáðherra við Matorku á Alþingi á mánudaginn.

Málshefjandi er Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, og verður Ragnheiður Elín til andsvara.

Ragnheiður Elín gerði ívilnunarsamning við Matorku hinn 20. febrúar síðastliðinn sem metinn er á 450 milljónir króna. Fyrirtækið hyggur á stórfellt bleikjueldi á Reykjanesi en það er skráð í Sviss.

Matorka mun fá alls kyns ívilnanir svo sem eins og 50 prósenta lækkun á tryggingagjaldi.

Leiðrétting: Ívilnunarsamningur Matorku hljóðar upp á 450 milljónir króna samkvæmt Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en ekki 700 milljónir eins og áður hefur komið fram. Einnig hefur fyrirtækið óskað eftir 52 milljónum í þjálfunarstyrki. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu verður fyrirtækið ekki styrkt meira en nemur 35 prósentum af heildarfjárfestingu, sem er undir leyfilegu hámarki samkvæmt EES reglum. 


Tengdar fréttir

Þingmenn ósáttir við rök ráðherrans

Ívilnanasamningur ríkisins við Matorku var til umræðu á atvinnuveganefndarfundi þingsins í gær. Nefndarmenn minnihlutans voru ekki sáttir við röksemdafærslu ráðherrans. "Skekkir leikinn á markaði,“ segir Björt Ólafsdóttir.

Segist enga hagsmuna eiga vegna nýs frumvarps

Eiríkur Svavarsson, einn af eigendum Matorku ehf, segir að verið sé að leitast við að kasta rýrð á störf sín í laganefnd Lögmannafélags Íslands í ljósi eignarhaldsins á Matorku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×