Víða hálka á landinu Stefán Árni Pálsson skrifar 30. mars 2015 07:29 Á Vesturlandi er víða snjóþekja eða hálka en Fróðárheiði er ófær en unnið að hreinsun. Vísir/Vilhelm
Hálkublettir eru á Sandsskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum en þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Einnig er nokkur hálka á köflum á Suðurlandi, einkum útvegum og sumstaðar er jafnvel þæfingur eða þungfært á sveitavegum. Á Vesturlandi er víða snjóþekja eða hálka en Fróðárheiði er ófær en unnið að hreinsun. Hálka, snjóþekja og jafnvel þæfingur er á Vestfjörðum og þungfært á kafla í Barðastrandasýslu. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði og verið að kanna færð á Þröskuldum. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja og éljagangur nokkuð víða. Þæfingsfærð er á Þverárfjalli og verið að kanna færð á Öxnadalsheiði. Í Eyjafirði er víða þæfingur en verið að hreinsa. Á Austurlandi er þæfingur á Fjarðarheiði og snjóþekja á Fagradal og Oddsskarði. Snjóþekja er með suðausturströndinni og þæfingsfærð í Öræfasveit en unnið að hreinsun.Veðurhorfur á landinu næsta sólarhringinn: Norðlæg eða breytileg átt, 8-15 m/s, hvassast austantil, léttskýjað sunnan- og vestanlands, dálítil él NV-til en snjókoma eða él NA- og A-lands. Hægari vindur þegar líður á kvöldið og dregur úr úrkomu. Gengur í norðvestan 10-18 m/s norðaustan til á landinu eftir hádegi á morgun með éljum. Annars hægari vindur. Bjartviðri fyrir sunnan, en stöku él norðvestan til. Frost 0 til 8 stig, en hiti um frostmark við SA- og A-ströndina.
Veður Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Erlent Jón undir feldi eins og Diljá Innlent Fleiri fréttir Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Kristrún í Kænugarði og átök innan sveitarfélaganna Fimm hundruð tré felld og ákvörðunar beðið Jón undir feldi eins og Diljá Hafa bæði í hyggju að leiða flokkana sína í næstu kosningum Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Áslaug Arna og Guðrún mætast í Pallborðinu í beinni í dag Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Ökumaður með hníf og kylfu en farþegi með heimatilbúnar sprengjur Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Svefnlyfjaneysla barna og heimildarmynd um úkraínska flóttamenn Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara 20 til 30 ný störf verða til í Árborg með tilkomu nýs öryggisfangelsis Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum og stórleikur í körfunni Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Reyndist vera eftirlýstur „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Stór skjálfti í Bárðarbungu Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Sjá meira