Fyrstu Íslandsmeistararnir í átta ár sem komast aftur í lokaúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2015 17:30 Berglind Gunnarsdóttir fór úr axlarlið í leik eitt en spilaði bæði leik þrjú og leik fjögur. Vísir/Vilhelm
Snæfellskonur tryggðu sér í gær sæti í lokaúrslitum Dominos-deildar kvenna og mæta þar Keflavíkurkonum sem sópuðu út Haukum tveimur dögum áður. Þetta eru tvö efstu liðin í deildinni og framundan er spennandi úrslitaeinvígi. Snæfellsliðið varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í fyrravor og fær nú aftur tækifæri til að spila um titillinn en það hafði ekki gerst í heil átta ár að meistararnir höfðu staðið pressuna í undanúrslitunum. Íslandsmeisturunum hjá stelpunum hefur nefnilega gengið afar illa í titilvörninni undanfarin ár og þetta er í fyrsta sinn frá 2007 sem meistarar spila til úrslita árið eftir. Haukakonur komust í úrslitin tvö ár í röð frá 2006 til 2007 með Helenu Sverrisdóttur í fararbroddi og unnu Íslandsmeistaratitilinn í bæði skiptin. Snæfellsliðið vann þrjár af fjórum leikjum sínum í undanúrslitaeinvíginu á móti bikarmeisturum Grindavíkur en á árunum 2008 til 2014 þá unnu ríkjandi Íslandsmeistarar aðeins 1 af 19 leikjum sínum í úrslitakeppni. Úrslitaeinvígið hefst í Hólminum á miðvikudagskvöldið en Keflavíkurkonur eru komnar í úrslitin í sautjánda sinn og hafa unnið 9 af 10 leikjum sínum í undanförnum þremur úrslitaeinvígum sínum þar af 3-1 sigur á KR þegar þær voru síðast í úrslitunum árið 2013.Gengi Íslandsmeistara árið eftir undanfarin ár: 2007 Haukar (Íslandsmeistari) 2008 Haukar (Undanúrslit, 0-3 tap fyrir Keflavík) 2009 Keflavík (Undanúrslit, 0-3 tap fyrir KR) 2010 Haukar (Undanúrslit, 0-3 tap fyrir KR) 2011 KR (Undanúrslit, 1-3 tap fyrir Keflavík) 2012 Keflavík (Undanúrslit, 0-3 tap fyrir Haukum) 2013 Njarðvík (Komst ekki í úrslitakeppnina) 2014 Keflavík (Undanúrslit, 0-3 tap fyrir Haukum) 2015 Snæfell (Lokaúrslit)
Dominos-deild kvenna Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira