Sport

Peterson má spila á ný

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Adrian Peterson ræðir við fréttamenn eftir að dómsmáli hans lauk í haust.
Adrian Peterson ræðir við fréttamenn eftir að dómsmáli hans lauk í haust. Vísir/Getty
Einn þekktasti íþróttamaður Bandaríkjanna, hlauparinn Adrian Peterson hjá Minnesota Vikings í NFL-deildinni, fékk í dag loks heimild til að spila í NFL-deildinni á nýjan leik.

Peterson er einn besti hlaupari síðustu ára í NFL-deildinni en spilaði aðeins einn leik með Vikings á síðasta tímabili. Hann var svo dæmdur í bann eftir að upp komst um að hann hafi refsað fjögurra ára syni sínu með því að hýða hann með trjágrein.

Peterson var kærður en málinu var lokið með dómssátt í lok síðasta árs. Við það fékk hann engu að síður ekki leikheimild og var haldið á sérstökum bannlista sem Roger Goodell, yfirmaður NFL-deildarinnar, heldur utan um.

Peterson er nú hins vegar kominn með leikheimild á ný og verður ekki refsað frekar vegna málsins. Hann verður hins vegar undir nánu eftirliti og verðu umsvifalaust settur aftur í bann ef hann fer ekki eftir skilmálum dómssáttarinnar.

Forráðamenn Vikings hafa sagt að þeir vilji fá Peterson aftur í sínar raðir og er hann samningsbundinn liðinu í þrjú ár í viðbót. Talið er hins vegar að Peterson sé ósáttur við félagið fyrir að styðja sig ekki nægilega vel eftir að málið kom upp í haust og er óvíst hvort að hann mæti á æfingar þegar þær hefjast í næstu viku.

Umboðsmaður Peterson hefur sagt að hann vilji sjá Peterson spila með öðru liði en hann hefur verið orðaður við Dallas Cowboys og Arizona Cardinals. Hann er hins vegar á afar háum samningi hjá Vikings og óvíst hvort að nokkurt annað lið sé reiðubúið að taka við honum í óbreyttu ástandi.

Minnesota Vikings hefur sagt að félagið hafi engan áhuga á að láta Peterson fara.

NFL

Tengdar fréttir

Peterson spilar ekki með Vikings á næstunni

Mál hlauparans Adrian Peterson tóku óvæntan snúning í gærkvöld þegar félag hans, Minnesota Vikings, ákvað að halda honum áfram fyrir utan liðið.

Peterson segist ekki vera barnaníðingur

Það er fast sótt að einni stærstu stjörnu NFL-deildarinnar, Adrian Peterson, þessa dagana eftir að hann lamdi son sinn með trjágrein.

Lofar að flengja ekki aftur með trjágrein

NFL-stjarnan Adrian Peterson hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann var kærður fyrir að flengja fjögurra ára gamlan son sinn með trjágrein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×