Þetta myndi aldrei gerast hjá reyndum dómara Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. apríl 2015 12:00 Leah Williamson býr sig undir að taka vítaspyrnuna sögulegu, fimm dögum eftir að upphaflega vítið var dæmt af. Vísir/Getty
Talsmaður Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, segir að þar á bæ hafi menn ekki áhyggjur af því að mistök eins og áttu sér stað í U-19 landsleik Noregs og Englands á dögunum muni endurtaka sig. Eins og fjallað hefur verið um gerði dómari í leik liðanna þau mistök að láta ekki endurtaka vítaspyrnu sem England fékk í uppbótartíma leiksins. Skorað var úr spyrnunni en hún dæmd ógild eftir að leikmaður Englands hljóp of snemma inn í vítateiginn. Í stað þess að láta endurtaka spyrnuna, eins og knattspyrnulög gera ráð fyrir, dæmdi dómarinn óbeina aukaspyrnu á enska liðið og þær norsku fögnuðu 2-1 sigri og þar með sæti í lokakeppni EM U-19 liða. UEFA ákvað að láta endurtaka leikinn til að leiðrétta mistök dómarans. Englendingar skoruðu úr vítinu, leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli og England komst á EM.Sjá einnig: Þessi dómari var sendur heim með skömm - sjáið af hverju „Þetta hefur ekki gerst áður og við teljum enga ástæðu til að ætla að reyndur dómari geti gert svona mistök,“ var haft eftir talsmanni UEFA í enskum fjölmiðlum. „Á stórum leikjum er líka fjórði dómari sem hefur líka mikla reynslu og stundum eru líka fjórir aðstoðardómarar en ekki tveir. Það er erfitt að ímynda sér að allir þeir muni líta framhjá svo stórum þætti í knattspyrnulögunum.“ Reyndar var fjórði dómari á umræddum leik Englands og Noregs en sá virðist hafa verið jafn ókunnugur lögunum og dómari leiksins sem gerði mistökin. „Þetta er bara spurning um reynslu. Í U-19 mótum eru margir dómaranna að stíga sjálfir sín fyrstu skref,“ sagði talsmaður UEFA.
Fótbolti Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi Körfubolti Fleiri fréttir Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Sjá meira