Innlent

Ísland þarf ekki að draga sig úr Eurovision

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Hera segist aldrei hafa óttast um þátttöku Íslands í keppninni, en er ánægð með að lausn sé loks fundin. Nú geti hún farið að einbeita sér að öðrum málum.
Hera segist aldrei hafa óttast um þátttöku Íslands í keppninni, en er ánægð með að lausn sé loks fundin. Nú geti hún farið að einbeita sér að öðrum málum. vísir/stefán/andri
Lausn hefur verið fundin á þeim vanda sem skapaðist í kringum þátttöku Íslands í Eurovision í ár vegna verkfalls lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúi PwC mun sinna eftirlitshlutverkinu og þarf Ísland því ekki að draga sig úr keppni.

Þetta segir Hera Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Eurovision hjá RÚV, í samtali við Vísi. Hún segir að leitað hafi verið lausna í samráði við yfirstjórn keppninnar. Nokkrir möguleikar hafi verið í boði en að niðurstaðan hafi verið sú að PwC, sem sé alþjóðlegur eftirlitsaðili keppninnar, muni sjá um öll endurskoðunar- og eftirlitsmál ásamt því að samþykkja þá sem sitja í dómnefndum og fara yfir niðurstöður íslensku dómnefndarinnar.

Þátttaka Íslands í Eurovision komst í uppnám í síðasta mánuði vegna verkfalls hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu því hingað til hefur það verið hlutverk lögbókanda að sinna eftirlitshlutverkinu.

Hera segist aldrei hafa óttast um þátttöku Íslands í keppninni, en er ánægð með að lausn sé loks fundin. Nú geti hún farið að einbeita sér að öðrum málum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×