Segir sambærilegar ráðstefnur erlendis mun dýrari Stefán Árni Pálsson skrifar 4. maí 2015 12:00 Geena Davis mætir í Hörpuna. „
Þetta er gríðarlega spennandi mál en WE er alþjóðlegt samtal helstu sérfræðinga um efnahagslegt, viðskiptalegt og samfélagslegt virði til þess að brúa kynjabilið,“ segir Halla Tómasdóttir, ráðstefnustjóri, alþjóðlegu ráðstefnunnar Inspirally WE 2015 sem verður haldin í Hörpu í sumar í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Geena Davis, leikkona og stofnandi The Geena Davis institute og Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins taka þátt í ráðstefnunni meðal annarra. „Hingað eru að koma helstu sérfræðingar frá mörgum af bestu háskólum í heimi og fólk sem sinnir þessum málaflokki allstaðar í heiminum. Til þess að læra meðal annars af Íslandi sem stendur fremst hvað þetta varðar.“ Vísir greindi frá því í gær að það kosti 750 evrur sem jafngildir um 109 þúsund íslenskum krónum á ráðstefnuna. Það verð gildir til 15. maí en eftir þann tíma hækkar verðið um 200 evrur og verður því 950 evrur sem jafngildir rétt tæplega 140 þúsund krónum.Sjá einnig: Jafnréttisráðstefna í Hörpu: Kostar formúu að sjá Geenu Davis„Það er í rauninni verið að halda þetta þannig að vonandi náist endar saman. Það er gríðarlega dýrt að fá sérfræðinga beggja megin Atlantshafsins til að koma hingað og sérstaklega á þessum dýra tíma þegar flug og hótel kosta mikið,“ segir Halla en ráðstefnan fer fram dagana 18.-19. júní. Halla segir að hægt verði að fylgjast með ráðstefnunni á vefnum og á samfélagsmiðlum. „Það eiga því allir að geta tekið þátt og lært af þessu. Það er líka hægt að setja þetta í samhengi en eins dags námskeið með einum sérfræðingi kostar það sama hjá Endurmenntun. Hjá okkur eru yfir tuttugu helstu hugsuðir, sérfræðingar og breytingarstjórar á þessum sviðum að koma saman á einum stað á verðmiða sem er um það bil þriðjungur til helmingur af því sem kostar á sambærilega ráðstefnur erlendis.“
Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Jökulhlaup virðist hafið úr Mýrdalsjökli Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Boðar laugardagsbongó Sjá meira