Sport

Fyrrverandi NFL-leikmaður látinn 25 ára að aldri

Robinson í leik með Denver gegn Dallas.
Robinson í leik með Denver gegn Dallas. vísir/getty
Margir syrgja Adrian Robinson sem féll frá í gær.

Hann var aðeins 25 ára að aldri er hann lést. Ekki var uppgefið hvað varð Robinson að bana.

„Það syrgir okkur að tilkynna að Adrian Robinson sé látinn.  Adrian var elskaður faðir, sonur, bróðir, vinur og liðsfélagi. Við biðjum alla um að virða friðhelgi fjölskyldu hans á meðan hún syrgir," sagði í yfirlýsingu frá umboðsmanni hans.

Robinson samdi við Pittsburgh Steelers árið 2011 og spilaði 12 leiki á sínu fyrsta tímabili.

Honum var svo skipt til Philadelphia fyrir tímabilið 2013 en endaði að lokum hjá Denver. Hann spilaði sex leiki fyrir Denver áður en honum var skipt til San Diego.

Hann lék ekki í NFL-deildinni 2014 og spilaði þá í kanadísku deildinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×