Erlent

Myrtur af símaþjófum

Samúel Karl Ólason skrifar
Jeremy Cook.
Jeremy Cook.
Hinn 18 ára gamli Jeremy Cook var skotinn til bana af mönnum sem höfðu stolið síma hans. Með þar til gerðu forriti gat Cook séð hvar sími sinn væri og að morgni síðasta sunnudags fór hann með systur sinni til að ná í símann.

Þau komu að þremur mönnum í bíl og kom til átaka. Það endaði með því að Cook var skotinn margsinnis og lést hann af sárum sínum. Bíll mannanna fannst nærri og er mannanna leitað, samkvæmt Independant.

Lögreglan í Kanada, þar sem morðið var framið, hefur í kjölfarið varað fólk við því að hættur fylgi því að ætla sér að ná sjálfur í síma sinn. Þrátt fyrir að forrit sem geri fólki það kleift, séu mjög gagnleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×