Erlent

Skaut konu í höfuðið í brúðkaupsveislu

Vísir/GEtty
Ung kona lét lífið í smábæ í Norður-Frakklandi í gær eftir að brúðkaupsgestur skaut hana óvart í höfuðið. Konan var á gangi í bænum þegar bílalest með brúðhjónunum og gestum þeirra kom akandi framhjá. Einn gestur skaut þá úr riffli til að fagna brúðkaupinu en skotið fór í konuna sem lést skömmu síðar. Skotmaðurinn var handtekinn og verður væntanlega ákærður fyrir morð.

Ökumaður bílsins hefur einnig verið handtekinn samkvæmt Guardian. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×