Erlent

Drepinn af fíl í Þýskalandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Fíllinn slapp frá sirkus.
Fíllinn slapp frá sirkus. Vísir/EPA
65 ára gamall maður lést eftir að hafa rekist á fíl í Þýskalandi. Fíllinn Baby hafði sloppið frá sirkus nærri bænum Buchen og mætti maðurinn honum á hefðbundinni morgungöngu sinni í skógi við bæinn.

Fíllinn hefur verið fangaður aftur og komið fyrir í búri sínu. Lögreglan rannsakar hvernig hann slapp og af hverju hann var svo árásargjarn. Lögreglan segist hafa vísbendingar um að fílnum hafi annað hvort verið sleppt vísvitandi eða starfsmaður sirkussins hafi gleymt að loka búri hans.

Samkvæmt BBC hafði fíllinn slasað tvo aðra áður en hann drap manninn. Fyrst kastaði hann manni á háaloft og svo kjálkabraut hann tólf ára dreng með rana sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×