Telja að Facebook noti regnbogamyndirnar til þess að afla gagna um notendur Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 29. júní 2015 22:51 Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, setti regnbogalitaða forsíðumynd á Facebook-síðu sína til að sýna stuðning.
Hinir ýmsu vefmiðlar hafa í dag velt upp þeirri spurningu hvort regnbogalituðu myndirnar sem hafa að öllum líkindum tekið yfir fréttaveituna þína á Facebook að undanförnu séu rannsókn á vegum Facebook og að myndirnar séu notaðar til þess að afla gagna um félagslega hegðun fólks. Vefsíðan The Atlantic var fyrst til þess að spyrja spurningarinnar og hafa aðrir miðlar fylgt í kjölfarið. Cesar A. Hidalgo, vísindamaður sem er sérhæfður í netkerfum, setti inn færslu með regnbogalitaðri forsíðumynd sinni þar sem stóð: „Þetta er ábyggilega Facebook tilraun“. Stacy Blasiola, doktor í boðskiptum við háskólann í Illinois, sagði við sína forsíðumynd: „Þetta er tilraun sem ég vil gjarnan vera hluti af. “Regnbogamyndirnar á vegum Facebook Facebook bauð notendum sínum upp á einfalda leið til þess að breyta útliti forsíðumyndar sinnar í tilefni af dómsuppkvaðningu Hæstaréttar Bandaríkjanna þar sem hjónabönd fólks af sama kyni voru sögð stjórnarskrárbundinn réttur einstaklinga.Þessi færsla hefur vakið nokkra athygli en þessi vísindamaður lét það ekki hindra sig í að gera myndina regnbogalitaða þó hann gæti þar með talist partur af rannsókn.Í umfjöllun The Atlantic kemur fram að talsmaður Facebook hafi neitað því að um tilraun væri að ræða. „Þetta er ekki rannsókn eða próf – allir sjá það sama.“ Þetta er í fyrsta sinn sem Facebook hannar tól sem þetta. Talsmaðurinn neitaði ekki að fyrirtækið fylgdist með því hverjir sýna samfélagi LGBT fólks stuðning með því að setja inn regnbogalitða mynd og bæta slíkum upplýsingum inn í sívaxandi gagnagrunn sem geymir ótrúlegustu upplýsingar um notendur samfélagsmiðilsins. Í mars birtust niðurstöður úr rannsókn á vegum fyrirtækisins sem fjallaði um stuðning við jafnrétti þegar kemur að hjónabandi. Þá rannsökuðu, Bogdan State, doktorsnemi við Stanford, og Lada Adamic, sérfræðingur í tölvugögnum hjá Facebook, þá þætti sem höfðu áhrif á það þegar notendur ákváðu að breyta um forsíðumynd til þess að sýna stuðning við hjónabönd fólks af sama kyni.Neituðu ekki gagnaöflun Vefsíðan Gizmodo sendi fyrirspurn á Facebook sem svaraði með eftirfarandi hætti: „Þetta var ekki rannsókn eða athugun heldur mun frekar eitthvað sem gerir fólki kleift að sýna LGBT samfélaginu stuðning sinn á Facebook. Við ætlum ekki að nota þetta til þess að beina auglýsingum að notendum og markmið tólsins var ekki að safna saman upplýsingum um notendur.“ Eins og vefmiðillinn bendir sjálfur á felst ekki í svari fyrirtækisins neitun á því að um upplýsingasöfnun sé að ræða. Um 26 milljónir manna hafa breytt forsíðumynd sinni svo hún sýni regnbogalitaða mynd.
Mest lesið Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum Innlent Safnast í kvikuhólfið en ómögulegt að segja hvenær gýs Innlent Talið að snjór hafi villt um fyrir ferðamönnum Innlent Vonast til að fleiri fái niðurgreiðslu á sprautunni Innlent Netverjar keppast við að tjá sig um fundinn Innlent Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Innlent Greip til hnífs því hún óttaðist að sonurinn kæmi að sér látinni Innlent Kornbændur á Suðurlandi bera sig vel Innlent Þórarinn víkur sem formaður Sameykis Innlent Þyrlan kölluð út vegna tilkynningar um hvítabirni Innlent Fleiri fréttir Kynferðisofbeldið sýnt í dómsal Eftirlifendur kjarnorkusprengjanna hlutu friðarverðlaun Nóbels Dreifðu ösku látins félaga í auga Miltons Réttarhöld yfir Diddy hefjast 5. maí 2025 Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Peskov staðfestir að Rússar hafi fengið Covid-próf frá Bandaríkjunum Ethel Kennedy er látin Tíu létust þegar Milton fór yfir Flórída Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Sjá meira