Lífið

Lagði í stæði fatlaðra og kom að bíl sínum þöktum límmiðum

Samúel Karl Ólason skrifar
Maðurinn var ansi reiður þegar hann kom að bílnum sínum.
Maðurinn var ansi reiður þegar hann kom að bílnum sínum.
Maður sem lagði bíl sínum í stæði fatlaðra í Brasilíu brá heldur í brún þegar hann kom aftur út. Búið var að þekja bíl hans í svokölluðum „post it“ límmiðum. Miðarnir voru bláir og hvítir og mynduðu merkingu stæðisins.

Fjöldi fólks fylgdist með manninum reyna að rífa miðana af bílnum áður en hann ók í burtu. Fólkið fagnaði og hrópaði á manninn. Maðurinn lenti nærri því í árekstri og keyrði svo hratt í burtu. Skömmu áður hafði hann þó fengið sekt fyrir að leggja í stæðið.

Hér má sjá myndband af atvikinu. Í raun var ekki um skyndiákvörðun að ræða, heldur var þetta skipulagður hrekkur hóps sem kallar sig Canal BOOM. Útskýringu má sjá hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×