Lífið

Vill ekki lengur heita Blanket: Breytti nafninu yfir í Bigi Jackson

Stefán Árni Pálsson skrifar
Michael Jackson nokkrum dögum áður en hann lést árið 2009. Bigi er á myndinni til hægri.
Michael Jackson nokkrum dögum áður en hann lést árið 2009. Bigi er á myndinni til hægri. vísir/getty
Blanket Jackson, sonur söngvarans Michael Jackson, hefur ákveðið að skipta um nafn. Í dag heitir hann Bigi Jackson en áður bar hann nafnið Blanket Jackson.

Drengurinn er 13 ára og er yngsta barn poppgoðsagnarinnar. Samkvæmt fjölmiðlum ytra mun drengurinn hafa þurft að þola mikla stríðni alla ævi og þá sérstaklega út af nafninu.

Bigi Jackson er að byrja í nýjum skóla eftir sumarfrí og vill hann mæta til leiks með glænýtt nafn. 

Michael Jackson dó fyrir akkúrat sex árum í dag eða 25. júní árið 2009. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×