Erlent

Móðir og barn fundust á lífi eftir flugslys

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Hér sést barnið í fangi björgunarmanns.
Hér sést barnið í fangi björgunarmanns. Vísir/EPA
Átján ára kona og árs gamalt barn hennar fundust lifandi í morgun, fimm dögum eftir að flugvél þeirra brotlenti í skóglendi í vesturhluta Kólumbíu. Yfirmaður í kólumbíska flughernum segir kraftaverk að þau hafi fundist á lífi.

Konan var eitthvað meidd og með brunasár en barnið hennar virðist við góða heilsu. Þau voru farþegar í lítilli tveggja hreyfla flugvél sem brotlenti á laugardag. Ekki liggur fyrir af hverju vélin brotlenti. Flugmaður vélarinnar lést.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×