Erlent

17 létust er rafmagnslína féll á rútu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frú rútuslysi á Indlandi í liðnum mánuði.
Frú rútuslysi á Indlandi í liðnum mánuði. VÍSIR/EPA
Að minnsta kosti 17 manns létust í Jaipur á Indlandi þegar rafmagnsvír féll ofan á rútu sem flutti fólkið fyrr í dag.

Að sögn fulltrúa stjórnvalda svæðisins hafði bíllinn verið að flytja á sjötta tug manna í brúðkaup í nærliggjandi héraði. Brúðurin og brúðguminn voru ekki um borð í rútunni ef marka má New York Times.

Tuttugu og þrír aðrir eru taldir hafa slasast þar að auki. Þeir voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús en nákvæmari upplýsingar er ekki að fá að svo stöddu.

Rafmagnsdreifikerfinu á Indlandi er víða illa viðhaldið og hefur það haft í för með sér að rafmagnslínur falli með tilheyrandi tjóni á munum og mönnum.  

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×