Lífið

Dæmdur í fangelsi fyrir að hakka sig inn á tölvur Madonnu

Birgir Olgeirsson skrifar
Madonna.
Madonna. Vísir/Getty
Ísraelskur karlmaður hefur verið dæmdur til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hakka sig inn í tölvur bandarísku söngkonunnar Madonnu. Maður heitir Adi Lederman, 39 ára, sem var handtekinn í janúar síðastliðnum eftir rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar FBI.

Lederman játaði á sig brotin gegn vægari dóm en hann var fundinn sekur um tölvuinnbrot og fyrir að brjóta gegn rétti söngkonunnar til friðhelgar. Greint var frá því í febrúar síðastliðnum að nýjustu plötu Madonnu, Rebel Heart, hefði verið lekið á netið fimm vikum áður en hún átti að koma formlega út. Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC segir dóminn ekki þó hafa upplýst hvort Lederman hefði verið sá sem komst yfir plötuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×