Erlent

Seldu 13 ára dóttur sína í vændi

Samúel Karl Ólason skrifar
Síðustu ár hefur staða kvenna í Indlandi vakið mikla athygli.
Síðustu ár hefur staða kvenna í Indlandi vakið mikla athygli. Vísir/EPA
Foreldrar þrettán ára stúlku hafa verið handtekin í Indlandi fyrir að hafa selt stúlkuna í vændi í tvö ár. Stúlkan segir að á þeim tíma hafi um 40 menn haft mök við sig en lögreglan hefur þegar borið kennsl á 24 þeirra.

Móðir stúlkunnar viðurkenndi að hafa rukkað mennina um rúmar sex þúsund krónur. Stúlkan á sex systkini sem eru frá 4 til 24 ára gömul.

Auk kúnnanna hefur lögreglan einnig handtekið tíu aðra menn samkvæmt BBC. Stjúpfaðir stúlkunnar er bílstjóri og seldi hann stúlkuna til viðskiptavina sinna með því að sýna þeim mynd af henni.

Stúlkan hefur verið tekin af heimili fjölskyldunnar og heldur nú til á ríkisreknu athvarfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×