Lífið

Sjáðu hvernig nýi draugabanabíllinn lítur út

Birgir Olgeirsson skrifar
Svona verður nýi draugabanabíllinn.
Svona verður nýi draugabanabíllinn. Vísir/Twitter
Framleiðsla nýju draugabanamyndarinnar er í fullum gangi og hefur leikstjórinn nú birt myndir af nýja bílnum sem draugabanarnir munu aka. Melissa McCarthy, Kristen Wig, Leslie Jones og Kate McKinnon munu leika nýja gengið sem berst við drauga en Chris Hemsworth var nýverið kynntur til leiks en hann mun leika starfsmann í móttöku höfuðstöðva draugabananna.

Leikstjórinn Paul Feig birti þessa mynd af nýja bílnum á Twitter.

Þegar aðdáandi bað um að sjá bakhlið bílsins varð Feig nánast samstundis við þeirri bón og birti þessa mynd.

Hann hefur einnig birt myndir af nýjum búningum draugabananna.

Og einnig sýnt aðdáendum hvernig nýja róteindavélin, sem draugabanarnir nota til að fanga drauga, lítur út.

Neil Casey.Vísir/Getty
Þá var tilkynnt á mánudag að leikarinn Neil Casey muni fara með hlutverk illmennisins í nýju myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×