Lífið

„Þetta kemst næst því að vinna Óskarinn fyrir mig“

Bjarki Ármannsson skrifar
Elsa hlaut þúsund evrur í verðlaun fyrir myndina nú um helgina og segist ætla að nýta peninginn í næstu verkefni.
Elsa hlaut þúsund evrur í verðlaun fyrir myndina nú um helgina og segist ætla að nýta peninginn í næstu verkefni.
„Ég er auðvitað uppi með mér, algerlega sveif upp á bleikt ský við þetta,“ segir Elsa G. Björnsdóttir, sem um síðustu helgi vann til verðlauna fyrir stuttmyndina Sagan endalausa á hátíðinni Clin d’Oeil í Frakklandi. Um er að ræða listahátíð fyrir döff einstaklinga, þ.e. heyrnarlausa sem notast við táknmál, þar sem keppt er í leik, uppistandi, tónlist og ýmsu fleira.

„Ég sendi mína stuttmynd auðvitað út því það að komast út á svona hátíð er alger unaður fyrir mig,“ segir Elsa. „Döff listamenn um allan heim sækja um að komast á þessa sýningu með sitt verk, því þarna er hægt að búa til ótrúlega gott tengslanet og kynnast og sjá aðra performera.“

Sagan endalausa fjallar að sögn Elsu um upplifun þeirra döff barna sem uppi voru á þeim tíma sem ekki mátti nota táknmál.

„Frá 1880 til 1980 var þeim gert skylt að eiga að skilja allt með því að lesa af vörum,“ útskýrir hún. „Myndin er hljóðlaus til að upplifun áhorfandans verði sem næst upplifun barnsins af því að skilja aldrei neitt.“

Elsa útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2010. Hún hlaut þúsund evrur í verðlaun fyrir myndina nú um helgina og segist ætla að nýta peninginn í næstu verkefni.

„Þetta kemst næst því að vinna Óskarinn fyrir mig,“ segir hún. „Þessu fylgir að fólk tekur eftir verkefnunum mínum, sækist eftir því að sjá verkið og að sjálfsöðu vita núna allir í döffheimnum hver ég er. Þetta var það besta sem getur komið fyrir döff listamann eins og mig.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×