Lífið

Leikhúsgestur á Broadway stökk upp á svið til að hlaða símann sinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Leikkonan Sarah Stiles birti þessa mynd á Instagram síðu sinni þar sem hún og kollegar hennar taka sjálfsmynd við innstunguna góðu.
Leikkonan Sarah Stiles birti þessa mynd á Instagram síðu sinni þar sem hún og kollegar hennar taka sjálfsmynd við innstunguna góðu.
Flestir eru meðvitaðir um hvernig sé viðeigandi að hegða sér í leikhúsi. Grunnreglurnar eru þrjár: Ekki mæta of seint, ekki tala á meðan á sýningu stendur og bannað að fara upp á svið. Þannig hefst frétt Guardian um furðulega uppákomu sem átti sér stað rétt í þann mund sem sýning á Hand to God átti að hefjast á fimmtudaginn í síðustu viku.

Einn leikhúsgesta virðist hafa séð innstungu á sviðinu og væntanlega verið með því sem næst rafhlöðulausan síma. Hann gerði sér því lítið fyrir og vippaði sér upp á svið í þeim tilgangi að hlaða símann sinn en hann var með hleðslutæki með sér. Því miður fyrir hann reyndist innstungan hluti af leikmyndinni og því ekki nothæf.

„Þetta var alveg fáránlegt allan tímann,“ segir Chris York, einn leikhúsgesta sem vakti máls á uppákomunni á Facebook-síðu sinni. Hann segir að gesturinn hafi skellt sér á svið um tveimur mínútum áður en sýningin átti að hefjast. Símaeigandinn hafi verið á þrítugsaldri og þurft að stökkva upp á svið enda engar tröppur í boði.

Í fyrstu hafi leikhúsgestir talið að uppákoman væri hluti af sýningunni. Um leið og fólk hafi áttað sig á því að svo var ekki fór fólk að hlæja að manninum og gera grín að honum. Í kjölfarið voru gestir í salnum minntir á að óheimilt væri að hlaða síma sína á sviðinu.

Sarah Stiles, leikkona í Hand to God, velti fyrir sér hvort tunglið hefði verið fullt þetta kvöld.

Þá benti annar leikari, Marc Kudisch, vinsamlega á að innstungan væri ekki ætluð til símahleðslu.

Nokkrir leikarar í sýningunni brugðu á leik að henni lokinni og þóttust taka mynd af sér með símaeigandanum.

Selfies with the infamous charger at fight call. #yesitreallyhappened @handtogodbway

A photo posted by Sarah Stiles (@lulubellestiles) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×