Erlent

Þrír létu lífið í skotárás nærri háskóla

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Þrír létu lífið og einn særðist í skotárás í Baltimore í Bandaríkjunum í nótt. Árásin átti sér stað nærri University of Maryland þar í borg og hafa nemendur verið beðnir um að vera varkárir. Lögreglan fékk tilkynningu frá öryggisvörðum skólans um að menn hefðu stigið úr tveimur sendiferðabílum og hafið skothríð á hóp fólks.

Lögreglan segir að tveir menn og tvær konur hafi orðið fyrir skotum. Einn maður lést á staðnum og hin tvö létust á sjúkrahúsi. Ein kona lifði af og er hún sögð í stöðugu ástandi, en hún var skotin í bakið. Hún gekk sjálf inn á sjúkrahúsið.

Einungis nokkrum dögum áður var skotið á bíl á sama stað í borginni og særðist ökumaðurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×