Erlent

Batman-morðinginn sakhæfur og sakfelldur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
James Holmes í þingsal.
James Holmes í þingsal. Vísir/AP
Hinn 24 ára gamli James Holmes var í kvöld sakfelldur fyrir að hafa skotið tólf manns til bana í kvikmyndhúsi í Aurora í Colorado fyrir þremur árum síðan.

Kviðdómur í Denver kvað upp niðurstöðu sína nú fyrir skömmu en aðalmeðferð málsins hafði staðið yfir í um 11 vikur.

Það tók hinar níu konur og þrjá karla sem skipuðu kviðdóminn þrettán klukkustundir að komast að niðurstöðu eftir að hafa hlustað á vitnisburð á þriðja hundrað manns.

Ákæran yfir honum var í 165 liðum; 24 lutu að morðum, 140 að tilraunum til manndráps og einn laut að sprengjutilræði. Verjendur Holmes héldu því fram við réttarhöldin að hann sé vanheill á geði en kviðdómurinn féllst ekki á það.

Farið fram á fátíða dauðarefsingu

Nú tekur við næsta skref í rétthöldunum þar sem dómurinn yfir Holmes verður ákveðinn. Saksóknarar hafa farið fram á dauðarefsingu yfir manninum en hún er afar fátíð í Colorado-fylki. Einn maður hefur verið tekinn af lífi á undanförnum fjórum áratugum.

Holmes hóf skothríð á miðnætursýningu batmankvikmyndarinnar The Dark Knight Rises 20. júlí árið 2012. Tólf manns létust í árásinni sem fyrr segir og um 70 særðust.

Þá fannst einnig mikið magn sprengiefna á heimili Holmes. Tæknideild lögreglunnar í Aurora þurfti að aftengja flóknar sprengigildrur áður en lögreglumann gátu rannsakað íbúðina.



Tekist á um ósakhæfi

Holmes var doktorsnemi í taugaskurðlækningum. Talið var að hann væri haldinn geðhvarfasýki en hann hafði verið í meðferð hjá geðlækni í aðdraganda skotárásarinnar.

Saksóknarnar virðast þó hafa samfært kviðdóminn um að Holmes hafi verið meðvitaður um væntanlegar afleiðingar gjörða sinna áður en hann lét til skarar skríða í kvikmyndahúsinu fyrir liðlega þremur árum síðan.


Tengdar fréttir

Verjendur Holmes segja hann óheilbrigðan

Verjendur James Holmes, sem framdi fjöldamorð á sýningu Batman myndar í Colorado í Bandaríkjunum, segja að hann sé vanheill á geði. Við réttarhöld sem fram fóru í gær sögðu þeir að það þyrfti að meta andlegt ástand hans vel og fá skýrari mynd af því hvað gerðist í kvikmyndahúsinu. Holmes var sjálfur viðstaddur réttarhöldin. Einn af verjendum hans, Daniel King, sagði að saksóknarar hefðu undir höndunum lögregluskýrslur, en það vantaði myndir af vettvangi, upptökur og vitnisburð sérfræðinga.

Vilja að fjöldamorðinginn verði dæmdur til dauða

Þess verður krafist að James Holmes, sem skaut tólf til bana og særði fimmtíu og átta í skotárás í kvikmyndahúsi í Colorado-fylki í Bandaríkjunum á síðasta ári, verði dæmdur til dauða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×