Lífið

Ein söluhæsta söngkona Bandaríkjanna söng í lest og öllum var sama

Birgir Olgeirsson skrifar
Söngkonan Brandy
Söngkonan Brandy Vísir/Youtube
Bandaríska söngkonan Brandy er einn af söluhæstu tónlistarmönnum Bandaríkjanna en þegar hún ákvað að syngja eitt lag í neðanjarðarlest í New York var öllum saman. Þegar hún byrjaði að syngja lagið Home veittu því fáir áheyrn enda New York-búar vanir ýmsum uppákomum í lestunum.

„Það hlustaði enginn á mig? Öllum sama? Ok!,“ sagði Brandy eftir að hún hafði lokið flutningi sínum. Eftir að hafa gengið á einn mann svaraði hann: „Þú ert hæfileikarík, haltu þessu áfram,“ en bætti við: „Við höfum séð þetta milljónum sinum. Þú verður að gera eitthvað nýtt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×