Lífið

Geir á von á barni

Birgir Olgeirsson skrifar
Geir Ólafs og Adríana á góðri stundu.
Geir Ólafs og Adríana á góðri stundu.
„Þetta eru mestu gleðitíðindi í mínu lífi,“ segir söngvarinn Geir Ólafsson sem á von á barni með hinni kólumbísku Adriönu Patriciu Sanchez Krieger. „Þegar hún kom til landsins þá sagði ég við hana: Ég ætla að giftast þér,“ segir Geir um hana Adriönu sína sem hann kynntist árið 2009 þegar hún kom hingað til lands sem ferðamaður.

„Ég er ekki búinn að giftast henni ennþá en ég er búinn að barna hana þannig að það er góð leið,“ segir Geir Ólafsson. Geir og Adriana eiga von á barninu um eða eftir áramót en hún starfar sem markaðsstjóri hjá Santander-bankanum í Madríd á Spáni. Geir segir þó aðdáendur sína ekki þurfa að óttast að hann flytji frá landinu þrátt fyrir þennan ráðhag:

Geir og Adríana reyna að hittast eins oft og unnt er en hann starfar á Íslandi en hún á Spáni.
„Ég ætla ekki að yfirgefa landið mitt. Ég ætla að gera mitt besta til að byggja upp landið mitt. En við þurfum að huga að því að hugsa vel um barnið og huga að okkar sambandi líka. Það má ekki gleyma því.“

Hann segir Adríönu koma oft til Íslands. „Við reynum að hittast eins oft og hægt er og þetta gengur bara vel hjá okkur. Ég tek bara einn dag í einu og við verðum að sjá hvað tíminn leiðir í ljós. Maður gerir sitt besta og tekur einn dag í einu. Það er oft þannig að þegar maður þarf að taka stórar ákvarðanir þá gerist eitthvað allt annað.  Þannig að ég vona að þetta verði þannig að hvað sem við gerum þá megi það verða okkur til framdráttar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×